Síðasti greiðsludagur vegna orlofshúsaumsókna

Úthlutun vegna sumars 2019 hefur farið fram og tölvupóstur um niðurstöðu hefur verið sendur á umsækjendur.

Þeir sem fengu orlofshús, "viku að eigin vali" eða Útilegukort geta séð það inná félagavefnum undir bókunarsaga og einnig er hægt að ganga frá greiðslu þar vegna íbúða/orlofshúsa. 

Minnum á að síðasti dagur til að greiða orlofshúsabókun fyrir sumarið er 8. apríl 2019.

Ef greiðsla hefur ekki borist fyrir tilsettan tíma fellur bókunin niður.

10. apríl 2019 kl. 12 verður opnað fyrir bókun á félagavef á lausum orlofshúsavikum fyrir sumarið 2019 og vetrarleigu 2019-2020.