Kæru félagsmenn,
Við vekjum athygli á að samkvæmt kjarasamningi virkjaðist hagvaxtarauki nýverið. Launataxtar hækkuðu frá og með 1. apríl og áttu að koma til greiðslu með launum þann 1. maí. Launaaukinn er 10.500 krónur á taxta og 7.875 á almenn laun.
Við hvetjum félagsmenn til þess að fara yfir launaseðla sína og kanna hvort að hækkunin hafi skilað sér.