Stjórnarkjör

Félag verslunar og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni auglýsir eftir listum varðandi kjör trúnaðarstöður félagsins fyrir starfsárið 2021/2022 að viðhafðri allsherjaratkvæðagreiðslu.

Ber samkvæmt því að skila listum skipuðum:

• Formanni og tveimur í aðalstjórn til tveggja ára
• Þremur í varastjórn til eins árs
• Fimm aðalmönnum í trúnaðarráð til eins árs
• Fimm til vara í trúnaðarráð til eins árs.
• Fjórum í stjórn sjúkrasjóðs til eins árs og þremur til vara

Hverjum framboðslista skulu fylgja meðmæli minnst 60 félagsmanna.
Listum ber að skila á skrifstofu FVSA, Skipagötu 14, 3. hæð, eigi síðar en
kl. 12.00 á hádegi 29. janúar 2021