Stjórnarkjör - auglýst eftir listum

Stjórnarkjör

Félag verslunar og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni auglýsir eftir listum varðandi kjör í trúnaðarstöður félagsins fyrir starfsárið 2022-2023 að viðhafðri allsherjaratkvæðagreiðslu.

Ber samkvæmt því að skila listum skipuðum:

  • Tveimur í aðalstjórn til tveggja ára
  • Þremur í varastjórn til eins árs
  • Fimm aðalmönnum í trúnaðarráð til eins árs
  • Fimm til vara í trúnaðarráð
  • Fjórum í stjórn sjúkrasjóðs til eins árs og þremur til vara

Hverjum framboðslista skulu fylgja meðmæli minnst 60 fullgildra félagsmanna.

Listum ber að skila á skrifstofu FVSA, Skipagötu 14 3. hæð, eigi síðar en kl. 12.00 á hádegi mánudaginn 14. febrúar 2022.

Félag verslunar og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni