Stjórnarkjör FVSA

Félagið auglýsir eftir listum varðandi kjör í trúnðarstöður félagsins fyrir starfsárið 2019 -2020 að viðhafðri allsherjaratkvæðagreiðslu.

Ber samkvæmt því að skila listum skipuðum:

  • Þremur í aðalstjórn til tveggja ára
  • Þremur í varastjórn til eins árs
  • Fimm aðalmönnum í trúnaðarráð til eins árs
  • Fimm til vara í trúnaðarráð
  • Fjórum í stjórn sjúkrasjóðs til eins árs og þremur til vara

Hverjum framboðslista skulu fylgja meðmæli minnst 60 fullgildra félagsmann.

Listum ber að skila á skrifstofu FVSA Skipagötu 14, 3. hæð, eigi síðar en kl 12.00 á hádegi þriðjudaginn 5. febrúar.