Sumarleiga

Búið er að opna fyrir umsóknir í sumarleigu 2021. Umsóknarfrestur um orlofshús, útilegukort og viku að eigin vali fyrir sumarleigu 2021 er til 25. mars. Sótt er um á félagavefnum.

Sumarleiga orlofshúsa er frá 2. júní til 20. ágúst 2021 en umsækjendur fá svar með tölvupósti um úthlutunina um mánaðamót mars/apríl. Þeir sem fá úthlutað þurfa að greiða í síðasta lagi 12. apríl 2021.

Opnað verður fyrir lausar orlofsvikur sumarið 2021 og vetrarleigu 2021 til maí loka 2022 á félagavef þann 14. apríl kl. 12:00.