Sumarleiga 2019 og vetrarleiga 2019 -2020.

Opnað hefur verið fyrir umsóknir inná félagavefnum.

Umsóknarfrestur um orlofshús, útilegukort og viku að eigin vali fyrir sumarleigu 2019 er til 25. mars 2019.

Sumarleiga orlofshúsa er frá 5. júní til 23. ágúst 2019. Umsækjendur fá svar með tölvupósti um úthlutunina um mánaðamót mars/apríl og þeir sem fá úthlutað þurfa að greiða í síðasta lagi 8. apríl 2019.

Opnað verður fyrir lausar orlofsvikur sumar 2019 og vetrarleigu 2019 til maíloka 2020 á félagavef 10. apríl kl. 12:00.