Þín kjör - taktu þátt!

Þín kjör - taktu þátt!

Við minnum félagsmenn á að svara skoðanakönnun á vegum Gallup sem send var út í fyrri viku. Markmiðið er að kanna hug félagsmanna til FVSA og komandi kjarasamninga. Hvoru tveggja er mikilvægt og því vonumst við til þess að sem flestir gefi sér tíma til þess að svara.

Niðurstöður könnunarinnar verða kynntar á félagsfundi þann 27. apríl í Hofi. Nánari tímasetning verður auglýst síðar.

Fékkstu ekki póst?

Þeir félagsmenn sem ekki hafa fengið tölvupóst með link á könnunina geta sent póst á fvsa@fvsa.is, þar þarf að koma fram nafn, kennitala, netfang og símanúmer. Gallup mun svo senda link innan fárra daga.