Til félagsmanna

Kæru félagsmenn 

Í ljósi aðstæðna vill félagið koma eftirfarandi ábendingum á framfæri varðandi orlofshús og íbúðir í útleigu: 

  • Sóttvarnir og þrif við komu og brottför eru í höndum hvers og eins félagsmanns sem nýtir orlofshús eða íbúð á vegum félagsins.
  • Af öryggisástæðum er félagsmönnum óheimilt að nýta orlofshús og íbúðir félagsins sé viðkomandi, eða gestur á hans vegum, í sóttkví eða einangrun.

Við hvetjum ykkur til þess að hafa samband símleiðis ef þið hafið einhverjar spurningar, síminn er 455-1050. Skrifstofa félagsins er opin mánudaga-fimmtudaga kl. 08:00-16:00 og föstudaga kl. 08:00-13:00. 

Með góðri kveðju, starfsfólk FVSA