Félag verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni fagnar um þessar mundir 95 ára afmæli, en félagið var stofnað 2. nóvember árið 1930. Af því tilefni ætlum við að bjóða félagsfólki, núverandi sem fyrrverandi, upp á kaffi og köku mánudaginn 3. nóvember kl. 14:00-16:00 á skrifstofu félagsins, Skipagötu 14.
Saga félagsins í máli og myndum verður til sýnis. Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.