Þriggja herbergja íbúðir í Mánatúni 3, eru á fjórðu hæð. Íbúðirnar eru nýlegar og vel búnar. Tvö svefnherbergi eru í hvorri íbúð, rúmgóð stofa, vel búið eldhús með uppþvottavél og baðherbergi með sturtu. Í þvottahúsi er þvottavél og þurrkari. Gistiaðstaða er fyrir sjö manns í hvorri íbúð og að auki er barnarúm og barnastóll í íbúðunum.
Leigjandi þarf ekki að ryksuga, skúra eða þrífa baðherbergi en þurrka þarf af öllum borðum, stólum, úr skuffum og þess háttar, einnig að ganga frá öllu á sinn stað. Sé illa gengið frá kemur til aukakostnaður á leigjanda.
Vetur / Skiptidagar: Leigjandi á rétt á að koma til dvalar í íbúðina eftir kl. 17. á upphafsdegi leigu. Íbúðin skal rýmd eigi síðar en kl. 13. á brottfarardag.
Sumar / Skiptidagar: Íbúðin eru leigð í viku í senn yfir sumartímann og skipt á miðvikudögum. Íbúðin er til afhendingar kl. 17 en dvalargestir þurfa að skila íbúðinni kl. 13 á skiptidögum.
Að gefnu tilefni viljum við benda leigendum á að ALLT rusl verður að fara inn í ruslageymslu sem eru staðsett við innkeyrslu í bílakjallarann, lykill af ruslageymslu er á lyklakippunni ásamt húslykli, aðgangsdropa og fjarstýringu af bílageymslu.
Bílastæði
Bílastæði í bílakjallara fylgir með íbúðinni og er númer stæðisins merkt á lyklakippu.
Félagið á að auki tvö bílastæði í bílakjallara þar sem hægt er að hlaða rafmagnsbíla, nánari upplýsingar er hægt að fá á skrifstofu þegar lyklar eru afhentir.
Rétt er að minna á að 20 ára aldurstakmark er á leigu íbúðanna, miðað er við afmælisdaginn.
Umsjón með íbúðinni hefur FVSA sími 455 1050. Í neyðartilfellum er hægt að hafa samband við starfsfólk FVSA sjá upplýsingar hér.