Þriggja herbergja íbúð í Mánatúni 13, er á 3ju hæð. Íbúðin eru nýleg og vel búinn. Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni, rúmgóð stofa, vel búið eldhús með uppþvottavél og baðherbergi með sturtu. Í þvottahúsi er þvottavél og þurrkari. Gistiaðstaða er fyrir sex manns og að auki er barnarúm og barnastóll í íbúðinni. Nettenging er í íbúðinni ásamt grunnáskrift af Sjónvarpi Símanns.
Leigjandi þarf ekki að ryksuga, skúra eða þrífa baðherbergi en þurrka þarf af öllum borðum, stólum, úr skuffum og þess háttar, einnig að ganga frá öllu á sinn stað. Sé illa gengið frá kemur til aukakostnaður á leigjanda.
Vetur / Skiptidagar: Leigjandi á rétt á að koma til dvalar í íbúðina eftir kl. 17. á upphafsdegi leigu. Íbúðin skal rýmd eigi síðar en kl. 13. á brottfarardag.
Sumar / Skiptidagar: Íbúðin eru leigð í viku í senn yfir sumartímann og skipt á miðvikudögum. Íbúðin er til afhendingar kl. 17 en dvalargestir þurfa að skila íbúðinni kl. 13 á skiptidögum.
Að gefnu tilefni viljum við benda leigendum á að ALLT rusl verður að fara inn í ruslageymslu sem er staðsett við inngang í Mánatún 13, Borgartúnsmeginn, lykill af ruslageymslu er sá sami og af íbúð.
Bílastæði
Bílastæði í bílakjallara fylgir með íbúðinni og er númer stæðisins merkt á lyklakippu.
Félagið á að auki tvö bílastæði í bílakjallara þar sem hægt er að hlaða rafmagnsbíla, nánari upplýsingar er hægt að fá á skrifstofu þegar lyklar eru afhentir.
Umsjón með íbúðinni hefur FVSA sími 455 1050. Í neyðartilfellum er hægt að hafa samband við starfsfólk FVSA sjá upplýsingar hér.
Rétt er að minna á að 20 ára aldurstakmark er á leigu íbúðanna, miðað er við afmælisdaginn.