Mánatún 5 - 407

Höfuðborgarsvæðið
24.000 kr. (Fös-sun)
33.000 kr. (Vika)
81 fm 4 rúm
Nettenging
Barnarúm

Innifalið

Ekki innifalið

Tveggja herbergja íbúð í Mánatúni 5, á fjórðu hæð. Íbúðin er nýleg og vel búnin. Eitt svefnherbergi eru í íbúðinni, rúmgóð stofa, vel búið eldhús með uppþvottavél, baðherbergi með sturtu og þvottahúsi með þvottavél og þurrkara. Gistiaðstaða er fyrir fjórar manneskjur í íbúðinni. Í stofunni er veggrúm sem að fellur upp að veggnum þegar það er ekki í notkunn.

Reyklausar íbúðir (á líka við um veip)

Ekki er leyfilegt að hafa heimilisdýr.

Vakin er athygli á því að eftirlitsmyndavélar eru í sameign.

Leigjandi þarf ekki að ryksuga, skúra eða þrífa baðherbergi en þurrka þarf af öllum borðum, stólum og því um líku, einnig að ganga frá öllu á sinn stað. Sé illa gengið frá kemur til aukakostnaður á leigjanda.

Vetur / Skiptidagar: Leigjandi á rétt á að koma til dvalar í íbúðina eftir kl. 17. á upphafsdegi leigu. Íbúðin skal rýmd eigi síðar en kl. 13. á brottfarardag.

Sumar / Skiptidagar: Íbúðirnar eru leigðar í viku í senn yfir sumartímann og skipt á miðvikudögum. Íbúðirnar eru til afhendingar kl. 17 en dvalargestir þurfa að skila íbúðunum kl. 13 á skiptidögum.

Að gefnu tilefni viljum við benda leigendum á að ALLT rusl verður að fara inn í ruslageymslu sem eru staðsett við innkeyrslu í bílakjallarann, lykill af ruslageymslu er á lyklakippunni ásamt húslykli, aðgangsdropa og fjarstýringu af bílageymslu.

Umsjón með íbúðinni hefur FVSA sími 455 1050. Í neyðartilfellum er hægt að hafa samband við starfsfólk FVSA sjá upplýsingar hér. 

ATH að ekki er boðið uppá leigu á rúmfatnaði.

Félagið á eitt bílastæði í bílageymslu þar sem hægt er að hlaða rafmagnsbíla, nánari upplýsingar er hægt að fá á skrifstofu þegar lyklar eru afhentir.
ATH hleðslukapall fylgir EKKI stöðinni. 

Rétt er að minna á að 20 ára aldurstakmark er á leigu íbúðanna, miðað er við afmælisdaginn.

Leigutími: Allt árið
Lyklar afhentir á skrifstofu