Miðhúsaskógur, Bláskógabyggð

Suðurland
42.000 kr. (Vika)
55 fm 7 rúm
Heitur pottur
Gasgrill
Nettenging

Innifalið

Ekki innifalið

Sumarhús í Miðhúsaskógi, Bláskógabyggð er í um 17 kílómetra fjarlægð frá Laugarvatni en þar er hægt að sækja alla almenna þjónustu, sundlaug, matvöruverslun o.fl. 

Húsið eru 55 m2. Í því er 3 svefnherbergi og er svefnaðstaða er fyrir 7 manns, eitt tvíbreitt rúm sem er 140*200, ein koja sem er 90*200 að ofan og 140*200 að neðan og svo koja sem er 90*200. Setu- og borðstofa með eldhúskrók og baðherbergi með sturtu. Húsinu fylgja öll venjuleg eldhúsáhöld og borðbúnaður. Vinsamlega ath að vatnið í krönunum getur orðið mjög heitt.

Reyklaus bústaður. Ekki er leyfilegt að hafa heimilisdýr

Skiptidagar:  Orlofshúsið eru leigt viku í senn frá föstudegi til föstudags. Leigutakar mega koma frá kl 17.00 og brottför er í síðasta lagi kl. 12.00. 

Umsjónarmaður er Snorri s. 820-1791. Umsjónarmaður er á svæðinu yfir sumartímann, í fyrsta húsi til vinstri þegar komið er inná svæðið.

Á svæðinu eru margar gönguleiðir, hægt að fá lánaðar golfkylfur hjá umsjónarfólki í minigolf sem er á staðnum, uppblásið trampólín, fisbígolf, aparóla, sparkvellir, körfuboltavöllur og ýmislegt fleira. Sandkassi er við hvert hús og leiktæki í hverjum botlanga.

Rétt er að minna á að 20 ára aldurstakmark er á leigu íbúðanna, miðað er við afmælisdaginn.

Leigutími: Sumarleiga
Lyklar eru í lyklaskáp sem er staðsettur er við útidyr, skal lyklum skilað í lyklaskápinn aftur við brottför.