Sjúkrasjóður Félags verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni á og rekur íbúð 309 í Mánatúni 13. Íbúðin er leigð félagsfólki sem þarf að sækja læknisþjónustu í Reykjavík, óskað er eftir staðfestingu á læknisheimsókn við skil á lyklum.
Um er að ræða þriggja herbergja íbúð í fjölbýlishúsinu Mánatúni 13, 105 Reykjavík. Íbúðin er í lyftuhúsi með bílastæði í bílakjallara. Í íbúðinni er gott aðgengi fyrir hjólastóla bæði á snyrtingu og í svefnherbergjum. Íbúðin er miðsvæðis, stutt er í alla helstu þjónustu eins og verslun, apótek o.fl.
Aðeins er hægt er að bóka íbúðina með því að hringja á skrifstofuna í síma 455-1050 eða senda tölvupóst á fvsa@fvsa.is
Reglur um umgengni
Skiptidagar
Íbúðin er leigð eftir samkomulagi og þörfum hvers og eins. Leigjendur sem fara inn á föstudegi eru þó bundnir því að leigja íbúðina fram á sunnudag.
Bílastæði
Bílastæði í bílakjallara fylgir með íbúðinni og er númer stæðisins merkt á lyklakippu.
Félagið á að auki tvö bílastæði í bílakjallara þar sem hægt er að hlaða rafmagnsbíla, nánari upplýsingar er hægt að fá á skrifstofu þegar lyklar eru afhentir.
Dvöl í sjúkraíbúð fyrir félagsfólk sem greinist með krabbamein
Félagsmaður (maki eða börn hans upp að 18 ár aldri) sem greinist með krabbamein og þarf að sækja meðferð til Reykjavíkur getur dvalið í sjúkraíbúð félagsins í allt að tvær vikur sér að kostnaðarlausu
Umsjón með íbúðinni hefur FVSA sími 455 1050. Í neyðartilfellum er hægt að hafa samband við starfsfólk FVSA sjá upplýsingar hér.