Búið er að opna fyrir umsóknir um sumarleigu 2024.
Gagnlegir punktar:
- Umsóknarfrestur er til og með mánudeginum 25. mars
- Sótt er um á félagavefnum
- Sumarleigutímabilið er frá 5. júní til 16. ágúst 2024
- Við minnum félagsfólk á að skrá netfang sitt inni á félagavefnum undir Stillingar > Notandaupplýsingar
- Umsækjendur fá svar með tölvupósti varðandi úthlutunina um mánaðamótin mars/apríl
- Þau sem fá úthlutað þurfa að greiða fyrir leiguna í síðasta lagi 10. apríl 2024
- Opnað verður fyrir lausar orlofsvikur sumarið 2024 og vetrarleigu 2024 til maí loka 2025 á félagavefnum þann 16. apríl kl. 18:30 (betur auglýst síðar)
- Útilegukortið og Veiðikortið verða til sölu á skrifstofu félagsins með vorinu.
ATH. Ekki verður hægt að vera með skiptidaga á rauðum dögum og eru þeir dagar lokaðir á félagavefnum, hafa verður samband við skrifstofu ef bóka á í kringum þá daga.
Rétt er að minna á að 20 ára aldurstakmark er á leigu íbúðanna, miðað er við afmælisdaginn.
Leiguverð sumartímabil 2024 og vetur 2025
Leiguverð sumartímabil 2023 og vetur 2024