Alþjóðlegur baráttudagur launafólks verður haldinn hátíðlegur með dagskrá á Akureyri og í Fjallabyggð miðvikudaginn 1. maí.
Í ár fylkjum við liði undir kjörorðunum Sterk hreyfing - Sterkt samfélag og hvetjum við félagsfólk til þess að sýna samstöðu með því að fjölmenna í kröfugöngu og taka þátt í hátíðardagskrá.
Dagskrá á Akureyri 2024
Kröfuganga og hátíðardagskrá á Akureyri miðvikudaginn 1. maí
- 13:45 – Göngufólk safnast saman við Alþýðuhúsið
- 14:00 – Lagt af stað við undirleik Lúðrasveitar Akureyrar
- Hátíðardagskrá í Hofi að lokinni kröfugöngu
- Kynnir er Anna Júlíusdóttir, formaður Einingar-Iðju
- Ávarp 1. maí-nefndar stéttarfélaganna, Guðmundur Helgi Þórarinsson, formaður VM
- Hátíðarræða, Finnbjörn A. Hermannsson – forseti ASÍ
Leikfélag Menntaskólans á Akureyri sýnir atriði úr söngleiknum um Gosa
Ívar Helgason tekur lagið
Boðið verður upp á kaffihressingu að dagskrá lokinni. Pylsur, safi og andlitsmálning fyrir börnin.
Dagskrá í Fjallabyggð 2024
- Boðið verður upp á létta dagskrá í sal félaganna að Eyrargötu 24b Siglufirði miðvikudaginn 1. maí kl. 14:30 – 17:00
- Ávarp frá 1. maí-nefnd stéttarfélaganna
- Kaffiveitingar
Við hlökkum til að hitta ykkur sem flest!