PACTA - Lögfræðingar félagsins

FVSA er með samning við PACTA lögmenn, en þeir sjá um alla lögfræðiþjónustu fyrir félagið. 

Starfsmönnum félagsins er heimilt að bjóða félagsmönnum sínum að leita viðtals og ráðgjafar hjá PACTA vegna ágreinings þeirra við vinnuveitendur, innheimtu launakrafna, skaðabótamála eða annarra mála, sem starfsmenn FVSA telja rétt að bjóða viðkomandi félagsmanni. FVSA ber kostnað af þeirri þjónustu sem unnin er fyrir félagsmanninn og ekki fæst greiddur úr hendi vinnuveitanda, þrotabús hans, ábyrgðasjóði launa eða af öðrum aðilum. Algjört skilyrði er að félagsmenn hafi fyrst samband við FVSA og er það félagsins að meta hvort málinu verði vísað til lögfræðinga félagsins.

Í samningum er einnig kveðið á um að félagsmaður í FVSA, sem leitar til PACTA án þess að félagið hafi milligöngu þar um, skuli fá 15% afslátt af gildandi gjaldskrá PACTA á hverjum tíma.

Nánar upplýsingar má fá á heimasíðu PACTA