Eftirvinnu- og yfirvinnukaup

Félag verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni (FVSA) og Landssamband íslenzkra verzlunarmanna (LÍV) gera heildarkjarasamninga við tvenn samtök atvinnurekanda; Samtök atvinnulífsins (SA) og Félag atvinnurekenda (FA).

Eftir- og yfirvinna samkvæmt samningi FVSA, LÍV, VR og SA:

Dagvinnutími hjá afgreiðslufólki er kl. 9:00-18:00 en hjá skrifstofufólki er hann kl. 9:00-17:00. Fullt starf er 167,94 klst. á mánuði hjá afgreiðslufólki og 159,27 klst. hjá skrifstofufólki.

Eftirvinna: Greidd er eftirvinna fyrir vinnu starfsfólks sem fer fram yfir hinn venjulega dagvinnutíma en innan þess tíma sem er skilgreindur sem fullt starf á mánuði eða 100% starf.

Næturvinna: Greidd er næturvinna fyrir vinnu starfsfólks frá kl. 00:00 til kl. 7:00 en innan þess tíma sem er skilgreindur sem fullt starf á mánuði eða 100% starf.

Tímakaup afgreiðslufólks í eftirvinnu til kl. 00:00 er 0,8235% af mánaðarlaunum fyrir dagvinnu.

Tímakaup afgreiðslufólks í næturvinnu frá kl. 00:00 til kl. 7:00 er 0,8824% af mánaðarlaunum fyrir dagvinnu.

Tímakaup skrifstofufólks í eftirvinnu til kl. 00:00 er 0,875% af mánaðarlaunum fyrir dagvinnu

Tímakaup skrifstofufólks í næturvinnu frá kl. 00:00 til kl. 7:00 er 0.9375% af mánaðarlaunum fyrir dagvinnu

Yfirvinna er öll vinna sem er unnin utan hefðbundins dagvinnutíma og umfram 167,94 klst. hjá afgreiðslufólki og 159,27 hjá skrifstofufólki. Tímakaup í yfirvinnu er 1,0385% af föstum mánaðarlaunum. 

Stórhátíðarvinna:
Stórhátíðarvinna er vinna á nýársdegi, föstudeginum langa, páskadegi, hvítasunnudegi, 17. júní, frídegi verslunarmanna, jóladegi og eftir kl. 12:00 á aðfangadegi og gamlársdegi. Öll vinna sem er unnin á stórhátíðum greiðist með tímakaupi sem nemur 1,375% af mánaðarlaunum fyrir dagvinnu. 

Unnir tímar teknir út í fríi

Samkvæmt samningi VR/LÍV og SA

Heimilt er með samkomulagi starfskrafts og atvinnurekanda, að safna frídögum vegna eftir-/nætur-/yfirvinnu, á þann hátt að eftir-/nætur-/yfirvinnutímar komi til uppsöfnunar og frítöku á dagvinnutímabili en munur dagvinnu -og eftir-/nætur-/yfirvinnutímakaups er greitt við næstu reglulegu útborgun eða komi í heild til uppsöfnunar og frítöku á dagvinnutímabili. Verðgildi unninna eftir-/nætur-/yfirvinnutíma skal lagt til grundvallar.

Samkomulag skal vera um frítöku. Frítökuréttur skv. framansögðu sem ekki hefur verið nýttur fyrir 1. maí ár hvert eða við starfslok, skal greiddur út m.v. verðgildi dagvinnustunda á greiðsludegi. Samkomulag skal vera um frítöku og hún skipulögð þannig að sem minnst röskun verði á starfsemi.

Skýring: Ein klukkustund í eftirvinnu reiknast sem 1,393 klst. í dagvinnu, ein unnin klukkustund í næturvinnu reiknast sem 1,493 klst. í dagvinnu og ein klukkustund í yfirvinnu reiknast sem 1,654 klst. í dagvinnu á skrifstofu.

Í verslun reiknast klukkustund í eftirvinnu sem 1,382 klst. í dagvinnu, ein klukkustund í næturvinnu reiknast sem 1,481 klst í dagvinnu og ein klukkustund í yfirvinnu reiknast sem 1,744 klst. í dagvinnu.

Yfirvinna samkvæmt samningi FVSA, LÍV, VR og FA

Yfirvinna er öll vinna sem er unnin utan hefðbundins dagvinnutíma og umfram 153,86 klst. á mánuði sem telst 100% starf. Dagvinnutími samkvæmt þessum samningi er kl. 7:00-19:00 alla virka daga.

Tímakaup í yfirvinnu er 1,0385% af mánaðarlaunum fyrir dagvinnu.

Stórhátíðarvinna:
Stórhátíðarvinna er vinna á nýársdegi, föstudeginum langa, páskadegi, hvítasunnudegi, 17. júní, frídegi verslunarmanna, jóladegi og eftir kl. 12:00 á aðfangadegi og gamlársdegi. Öll vinna sem er unnin á stórhátíðum greiðist með tímakaupi sem nemur 1,375% af mánaðarlaunum fyrir dagvinnu.