Aðalfundur 26. febrúar

Aðalfundur FVSA mánudaginn 26. febrúar

Aðalfundur Félags verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni verður haldinn mánudaginn 26. febrúar kl. 20:00 í sal Lions á fjórðu hæð Alþýðuhússins, Skipagötu 14.

Boðið verður upp á léttar veitingar.

Dagskrá fundarins:

  • Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár
  • Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til afgreiðslu
  • Kosning tveggja félagslegra skoðunarmanna og tveggja til vara
  • Kosning löggilts endurskoðanda félagsins
  • Kosning tveggja manna í kjörstjórn og tveggja til vara
  • Lýst stjórnarkjöri
  • Önnur mál

Við hvetjum félagsfólk til þess að fjölmenna!