FVSA er með til sölu á skrifstofu félagsins niðurgreidd gjafabréf á öll Íslandshótel landsins fyrir félagsmenn.
Verð á hverju gjafabréfi er kr. 16.900.-
- Hvert gjafabréf gildir fyrir gistingu í eina nótt í tveggja manna herbergi með morgunverði á þriggja stjörnu hóteli og gildir yfir vetur; október til og með apríl. Gistináttaskattur er innifalinn.
- Í maí greiðist aukagjald, 5.000 kr.-, fyrir hverja nótt.
- Júní, júlí, ágúst og september, greiðist aukagjald, 13.000 kr.- fyrir hverja nótt.
- Uppfærsla á fjögurra stjörnu Íslandshótel (Grand Hótel, Hótel Reykjavík Centrum, Fosshótel Reykjavík og Fosshótel Glacier Lagoon) er 7.000 kr.- fyrir hverja nótt.
- Uppfærsla á Hótel Reykjavík Sögu er 15.000 kr.
- 2 orlofspunktar dragast af félagsmanni við kaup á hverjum gjafabréfi (orlofsmiða).
ATH. Ekki er hægt að skila bréfum og fá endurgreitt eða skipta uppí nýtt.
Hver félagsmaður getur að hámarki keypt 4 orlofsmiða samanlagt á hverju almannaksári af eftirtöldu; inneignarbréf Icelandair og gjafabréf á Íslandshótel.
Bókanir berist á netfang: gjafabref@islandshotel.is
Vinsamlega taka fram um að gjafabréf sé að ræða við bókun.
Nánari upplýsingar má finna á www.islandshotel.is