Aðalfundur FVSA 23. febrúar

Aðalfundur FVSA mánudaginn 23. febrúar 2026

Aðalfundur Félags verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni verður haldinn mánudaginn 23. febrúar kl. 20:00 í sal Lions á fjórðu hæð í Alþýðuhúsinu, Skipagötu 14.

Dagskrá fundarins:

  • Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár
  • Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til afgreiðslu
  • Kosning löggilts endurskoðanda félagsins
  • Kosning tveggja manna í kjörstjórn og tveggja til vara
  • Lýst kjöri stjórnar og trúnaðarráðs sbr. 10. gr.
  • Kynnt niðurstaða frá kjöri trúnaðarmanna á 8 aðalmönnum og 4 til vara í trúnaðarráð til eins árs sbr. 15. gr.
  • Önnur mál

Við hvetjum félagsfólk til þess að fjölmenna!