Aðalfundur FVSA

Aðalfundur félagsins var haldinn í Alþýðuhúsinu á Akureyri mánudaginn 25. febrúar sl. Fjölmennt var á fundinum þegar félagsmenn komu saman, gæddu sér á léttum veitingum og gerðu upp starfsemi félagsins á nýliðnu ári. Fundurinn hófst með ræðu formanns FVSA, Eiðs Stefánssonar, þar sem hann fór yfir ýmis mál sem snúa að stéttarfélaginu.  

Farið var yfir ársskýrslu stjórnar félagsins árið 2018 en skýrsluna má nálgast á heimasíðu FVSA. Í henni er að finna yfirlit yfir alla viðburði og almenna starfsemi félagsins á nýliðnu ári. Hermann Brynjarsson fór yfir ársreikninga félagsins 2018.

Nánari umfjöllun um fundin kemur í blaði félagsins sem er væntanlegt í hús miðvikudaginn 6. mars.

                                                                     Stjórn FVSA 2019 - 2020

Eiður Stefánsson formaður - Anna María Elíasdóttir - Anna Kristín Árnadóttir - Halldór Óli Kjartansson - Jón Grétar Rögnvaldsson