Aðalfundur FVSA skýrsla stjórnar og ársreikningar

Sigurjónu Þórdísi Ingvadóttur, Hönnu Sigríði Magnþórsdóttur og Agnesi Reykdal var þakkað fyrir vel u…
Sigurjónu Þórdísi Ingvadóttur, Hönnu Sigríði Magnþórsdóttur og Agnesi Reykdal var þakkað fyrir vel unnin störf í þágu félagsins, en allar eiga það sameiginlegt að hafa verið virkar í félagsstarfinu í yfir áratug.

Aðalfundur Félags verslunar- og skrifstofufólks var haldinn í sal Lions í gær, mánudaginn 23. febrúar. Formaður félagsins, Eiður Stefánsson, bauð fundargesti velkomna og ávarpaði því næst fundinn.

Í máli sínu fór Eiður yfir þungann róður heimilana sem búa við háan vaxta- og húsnæðiskostnað, hækkun á opinberum gjöldum og almennu vöruverði. Hann sagði að af þeim markmiðum sem áttu að renna stoðum undir kjarasamninginn þá hafi verkalýðshreyfingin ein staðið undir sínu með hógværum launakröfum. Ríki, sveitarfélög og fyrirtæki hafi hinsvegar brugðist loforðum um að standa með stéttarfélögunum í að ná niður verðbólu og vöxtum. Umsamdar launahlækkanir hafa því ekki skilað raunverulegum kaupmætti eins og til stóð. Á sama tíma er ofurhagnaður bankanna fenginn að hluta til úr vösum vinnandi fólks með íbúðalán, drifinn áfram af fáum útvöldum sem hagnast af því að eiga sparifé á háum innvöxtum í umhverfi þar sem engin samkeppni er á bankamarkaði.  

Eiður upplýsti að í haust úrskurði launa- og forsendunefnd um forsendur ákvæða í kjarasamningi og erfitt sé að spá fyrir um niðurstöðuna. Hann áréttaði að hvort sem að kjaraviðræður hefjist í haust eða haustið 2027 að þá þurfi félagsfólk að standa saman og leggjast á eitt í baráttunni fyrir betri framtíð. Kjarabarátta er eilíft verkefni sem ætti að vera okkur ofarlega í huga alla daga. „Til að ná fram betri kjörum þurfum við að vera óhrædd að taka samtalið við vinnufélagana á kaffistofunni um hvað við séum tilbúin til að leggja á okkur til að ná fram betri kjörum. Við megum engan tíma missa, við verðum að skipuleggja okkur fram í tímann og tryggja að skilaboðin frá okkur séu skýr – að við séum tilbúin til þess að fara í verkfall til að ná fram okkar markmiðum. sagði Eiður að lokum.


Eiður Stefánsson, formaður FVSA, ávarpar gesti í upphafi fundar.

Önnur aðalfundarstörf

Starfsmenn fundarins voru kjörnir þau Halldór Óli Kjartansson, fundarsstjóri og Eydís Bjarnadóttir, ritari. Í framhaldi kynnti Eiður skýrslu stjórnar og fór yfir starf félagsins í máli og myndum:

Félagsstarfið gekk vel á liðnu starfsári, félagið hélt fjölda funda í trúnaðarráði, morgufundi trúnaðarmanna, í stjórnum félagsins auk þess að bjóða fræðslu fyrir félagsfólk og nemendur í grunnskólum á þjónustusvæði félagsins. Einnig áttum við fulltrúa á viðburðum innan verkalýðshreyfingarinnar, bæði hérlendis og erlendis.“ 

Fundarstjóri kynnti næstan í pontu Hermann Byrnjarsson frá Enor sem fór yfir ársreikning félagsins. Rekstur félagsins gekk vel á liðnu starfsári, tveir liðir í ársreikningi taka markverðum breytingum á milli ára; greiðsla sjúkradagpeninga dróst saman um 29% og innleiðing á nýjum kerfum jók rekstrarkostnað um rúmar 10 milljónir. 

  • Nánar er fjallað um rekstur og starf félagsins í skýrslu stjórnar hér.

Claudia Lobindzus, stjórnarkona, kynnti tillögur um fulltrúa í kjörstjórn félagsins og löggildan endurskoðanda. Í kjölfarið lýsti Agnes Reykdal, varamaður í stjórn, stjórnarkjöri, en þar sem enginn listi barst gegn lista stjórnar og trúnaðarráðs var sjálfkjörið í allar stöður. Anna Hafdís Jóhannesdóttir, varamaður í stjórn, kynnti framlag í vinnudeilusjóð og tillögu um fjárfestingarstefnu félagsins og laun stjórnar- og trúnaðarráðs, en hvorutveggja var samþykkt einróma. 

Þakkir fyrir vel unnin störf 

Formaður félagsins, Eiður Stefánsson, kvað sér hljóðs undir dagskrárliðnum önnur mál og þakkaði fráfarandi félagsfólki í trúnaðarstöðum fyrir vel unnin störf í þágu félagsins. Sérstakar þakkir fengu þær Agnes Reykdal, Hanna Sigríður Magnþórsdóttir og Sigurjóna Þórdís Ingvadóttir, en allar eiga þær það sameiginlegt að hafa starfað með félaginu í yfir áratug.