Í morgun barst á skrifstofuna eftirfarandi bréf frá Miðbæjarsamtökunum á Akureyri og þar sem málefnið er gott er um að gera
að það fari sem víðast og því birtum við það hér á síðunni.
Mæðrastyrksnefnd hér á Akureyri er að vinna gríðarlega gott og öflugt starf í þágu þeirra sem minna mega sín.
Við hin sem höfum það sem við þurfum ættum að staldra við og hugsa til þeirra sem þurfa á aðstoð sem þessari að
halda.
Hjá flestum okkar leynast vörur í geymslum eða á lagerum sem kæmu að betri notum hjá fjölmörgum einstaklingum en að liggja hjá
okkur og safna ryki. Í versluninni
GS Akureyriráðhústorgi 7 tökum við á móti varningi sem gefa á til mæðrastyrksnefndar.
Þetta geta verið vörur af ýmsum toga, vörur til heimilisnotkunar eins og jólaskraut, jólagjafir handa stórum sem smáum, fyrir
jólasveininn til að setja í skóinn og fleira.
Næstkomandi laugardag verður
kóraslóð í miðbæ Akureyrar. Við fáum að njóta söngs víðs vegar í
bænum sem endar á ráðhústorginu við jólatréð og jólaköttinn um kl 16:30 við það tækifæri ætlum
við að afhenda mæðrastyrksnefnd það sem safnast hjá okkur.
Hafa ber í huga að þessi söfnun kemur ekki í staðinn fyrir jólagjafasöfnun sem á sér stað á Glerártorgi heldur er hrein
viðbót.
Pakkar afhendist frá og með deginum í dag til laugardags kl. 15 í GS Akureyri merktir innihaldinu á sér miða, eða sem t.d. gjöf fyrir 10 ára
strák.
Prentið endilega út þennan póst og farið með hann í fyrirtækin sem eru sitt hvorum megin við ykkar rekstur, þannig verður dreifingin mest,
og allir fá tækifæri til að vera með.
Með hátíðarkveðjum
Miðbæjarsamtökin á Akureyri