Nú hefur orlofshúsum og -íbúðum verið úthlutað fyrir sumarið 2023. Þeir félagsmenn sem fengu úthlutun eru búnir að fá svar í tölvupósti og hafa svigrúm til að greiða fyrir sína bókun út miðvikudaginn 12. apríl. Bókun fellur niður ef ekki er greitt fyrir tilsettan tíma. Hægt er að greiða fyrir úthlutaðar orlofsvikur í gegnum félagavefinn.
Opnað verður fyrir lausar orlofsvikur sumarið 2023 og vetrarleigu 2023 til maí loka 2024 á félagavefnum þriðjudaginn 18. apríl kl. 12:00. Gildir þá gamla góða reglan, fyrstur kemur, fyrstur fær.
Félagsmönnum er bent á að senda fyrirspurnir varðandi orlofsúthlutunina á fvsa@fvsa.is eða hringja í síma 455-1050.