Ársfundur Stapa 2026 - óskað eftir fulltrúum

Félagsfólk sem greiðir lífeyrissjóðsgjöld til Stapa lífeyrissjóðs athugið:

Félag verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni óskar eftir fulltrúum til að fara með atkvæðisrétt félagsins á ársfundi Stapa lífeyrissjóðs, mánudaginn 27. apríl nk. kl. 14.00 í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri.

Gögn ársfundar verða aðgengileg á vefsíðu sjóðsins www.stapi.is a.m.k. tveimur vikum fyrir ársfund.

Áhugasöm eru beðin um að gefa sig fram við skrifstofu félagsins í síma 455-1050 fyrir hádegi þann 13. apríl n.k. til að fá nánari upplýsingar. Einnig er hægt að hafa samband á netfangið helgi@fvsa.is

Skrifstofa félagsins er opin:
Mánudaga - fimmtudaga kl. 08:00-16:00
Föstudaga kl. 08:00-13:00.