Atkvæðagreiðsla um nýjan sérkjarasamning flugvallarstarfsmanna

Atkvæðagreiðsla um nýjan sérkjarasamning hjá innanlandsflugi Icelandair

Atkvæðagreiðsla um nýjan sérkjarasamning Félags verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni (FVSA)/Landssambands íslenzkra verzlunarmanna (LÍV) við Samtök atvinnulífsins fyrir hönd innanlandsflugs Icelandair hefst kl. 12:00 á hádegi fimmtudaginn 11. apríl 2024 og lýkur kl. 12:00 á hádegi þriðjudaginn 16. apríl.

Kosningarétt hefur allt félagsfólk FVSA sem starfar samkvæmt þessum samningi.

Atkvæðagreiðslan er rafræn og fá atkvæðisbærir félagar send kjörgögn og aðgang að rafrænum atkvæðaseðli í tölvupósti. Félagsfólk sem ekki getur kosið en telur sig eiga rétt á að taka þátt í atkvæðagreiðslunni, vinsamlega sendið erindi til Kjörstjórnar FVSA á fvsa@fvsa.is eða hafið samband í síma 455-1050.

9. apríl 2024
Kjörstjórn Félags verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni