Bjarg íbúðafélag - opið fyrir umsóknir

Vakin er athygli á að nú er opið fyrir umsóknir vegna nýrra leiguíbúða Bjargs íbúðafélags við Langamóa 1-3 í Móahverfi á Akureyri.

Fyrsta skóflustunga var tekin í apríl 2025 og áætlað að fyrstu íbúðirnar verði tilbúnar til leigu í júlí 2026. Um er að ræða tvö hús á tveimur hæðum. Þar má finna tveggja til fjögurra herbergja íbúðir. Gæludýrahald verður leyft í íbúðum á jarðhæð.

Nánari upplýsingar um íbúðirnar má finna inni á vef Bjargs íbúðafélags hér

 

Bjarg íbúðafélag er sjálfseignarstofnun rekin án hagnaðarmarkmiða. Félaginu er ætlað að tryggja tekjulágum einstaklingum og fjölskyldum á vinnumarkaði, sem eru fullgildir félagsmenn aðildarfélaga ASÍ eða BSRB, aðgengi að öruggu íbúðarhúsnæði í langtímaleigu. Um er að ræða svokölluð leiguheimili að norænni fyrirmynd.