Desemberuppbót

Desemberuppbót fyrir árið 2017 er kr. 86.000

Desemberuppbót innifelur orlof, er föst tala og tekur ekki breytingum skv. öðrum ákvæðum. Desemberuppbót greiðist eigi síðar en 15. desember ár hvert, miðað við starfshlutfall og starfstíma, öllum starfsmönnum sem verið hafa samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum eða eru í starfi fyrstu viku í desember.  

Heimilt er með samkomulagi við starfsmann að uppgjörstímabil sé frá 1.desember til 30.nóvember ár hvert í stað almanaksárs. Áunna desemberuppbót skal gera upp samhliða starfslokum verði þau fyrir gjalddaga uppbótarinnar.