Desemberuppbót 2021

Desemberuppbót fyrir árið 2021 er 96.000,- kr.  

Við minnum félagsmenn á að desemberuppbót fyrir árið 2021 er 96.000,- kr. miðað við fullt ársstarf og greiðist eigi síðar en 15. desember ár hvert.

Desemberuppbót innifelur orlof, er föst tala og tekur ekki breytingum skv. öðrum ákvæðum. Áunna desemberuppbót skal gera upp samhliða starfslokum verði þau fyrir gjalddaga uppbótarinnar. 

Hverjir eiga rétt á desemberuppbót?

Desemberuppbót greiðist miðað við starfshlutfall og starfstíma, öllum starfsmönnum sem verið hafa samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum eða eru í starfi fyrstu viku í desember. Heimilt er með samkomulagi við starfsmann að uppgjörstímabil sé frá 1.desember til 30.nóvember ár hvert í stað almanaksárs.

Ávinnsla desemberuppbótar í fæðingarorlofi

Eftir eins árs starf hjá sama vinnuveitanda teljast fjarvistir vegna lögbundins fæðingarorlofs til starfstíma við útreikning desemberuppbótar. Sama gildir ef kona þarf af öryggis­ástæðum að leggja niður störf á meðgöngutíma, sbr. reglugerð um ráðstafanir til þess að auka öryggi og heilbrigði á vinnustöðum fyrir konur sem eru þungaðar, hafa nýlega alið barn eða hafa barn á brjósti.

Frí gegn desemberuppbót

Heimilt er með samkomulagi milli starfsmanns og vinnuveit­anda að fella niður eða lækka desemberuppbót og veita samsvarandi frí í staðinn, sem tekur mið af launum hvers og eins. Frí þetta skal veita í heilum eða hálfum dögum. 

Reiknivél fyrir desemberuppbót