Desemberuppbót 2026

Desemberuppbót 2026

Desemberuppbót skv. kjarasamningum FVSA er 114.000 kr. fyrir árið 2026. Áunna desemberuppbót skal greiða eigi síðar en 15. desember ár hvert miðað við starfshlutfall og starfstíma, öllu starfsfólki sem verið hefur samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum EÐA eru í starfi fyrstu viku í desember.

Fullt ársstarf telst í þessu sambandi 45 unnar vikur eða meira fyrir utan orlof eða 1.653,75 klst á skrifstofu eða 1.743,75 í verslun. Desemberuppbót innifelur orlof, er föst tala og tekur ekki breytingum skv. öðrum ákvæðum. 

Áunna desemberuppbót skal gera upp samhliða starfslokum verði þau fyrir gjalddaga uppbótarinnar.

Ávinnsla desemberuppbótar í fæðingarorlofi

Eftir eins árs starf hjá sama atvinnurekanda teljast fjarvistir vegna lögbundins fæðingarorlofs til starfstíma við útreikning desemberuppbótar. Sama gildir ef kona þarf af öryggis­ástæðum að leggja niður störf á meðgöngutíma, sbr. reglugerð um ráðstafanir til þess að auka öryggi og heilbrigði á vinnustöðum fyrir konur sem eru þungaðar, hafa nýlega alið barn eða hafa barn á brjósti.