Ársfundur Stapa lífeyrissjóðs verður haldinn miðvikudaginn 3. maí. n.k. klukkan 14:00 í Hofi á Akureyri.
Félagsmenn sem hafa áhuga á að vera fulltrúar og fara með atkvæðisrétt félagsins eru beðnir að gefa sig fram við skrifstofu FVSA í síma 455-1050 fyrir 17. apríl n.k. til að fá nánari upplýsingar. Einnig er hægt að hafa samband á netfangið fvsa@fvsa.is
Ársfundurinn er opinn öllum sjóðfélögum með málfrelsi og tillögurétt.
Skrifstofa félagsins er opin mánudaga - fimmtudaga kl. 08:00-16:00 og föstudaga kl. 08:00-13:00.