Fjölmennum og fögnum á verkalýðsdaginn!

Kæru félagsmenn, 

Félag verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni sendir baráttukveðjur og óskar ykkur sem og öllum landsmönnum til hamingju með daginn. Jafnframt hvetjum við ykkur öll til þess að sýna samstöðu með því að mæta í kröfugöngu stéttarfélaganna.

Göngufólk safnast saman við Alþýðuhúsið kl. 13:30 og leggur af stað við undirleik Lúðrasveitar Akureyrar kl. 14:00. Að göngu lokinni tekur við hátíðardagskrá í Hofi sem lýkur á kaffisamsæti.

Nánari upplýsingar um hátíðarhöldin og dagskrá á Siglufirði hér.