Fulltrúakjör fyrir þing LÍV

Fulltrúakjör

Félag verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni (FVSA) auglýsir eftir listum um kjör fulltrúa á 33. þing Landssambands íslenzkra verzlunarmanna (LÍV) að viðhafðri allsherjar atkvæðagreiðslu.

Listar skulu vera með með fimm aðalfulltrúum og fimm til vara á þing LÍV sem haldið verður á Selfossi, 19. – 20. október 2023.

Hverjum lista skulu fylgja meðmæli 25 fullgildra félaga. Listum skal skila á skrifstofu FVSA eigi síðar en kl. 12:00 á hádegi mánudaginn 25. september 2023.