Fulltrúi á ársfund Stapa

Félagsfólk sem greiðir lífeyrissjóðsgjöld til Stapa lífeyrissjóðs athugið:

Félag verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni óskar eftir fulltrúum til að fara með atkvæðisrétt félagsins á ársfundi Stapa lífeyrissjóðs, fimmtudaginn 2. maí nk. kl. 14.00.

Áhugasöm eru beðin um að gefa sig fram við skrifstofu félagsins í síma 455-1050 fyrir hádegi þann 16. apríl n.k. til að fá nánari upplýsingar. Einnig er hægt að hafa samband á netfangið helgi@fvsa.is

Skrifstofa félagsins er opin mánudaga - fimmtudaga kl. 08:00-16:00 og föstudaga kl. 08:00-13:00.