Við hvetjum félagsmenn til þess að mæta í kröfugöngu og taka þátt í hátíðardagskrá í tilefni af verkalýðsdeginum þann 1. maí!
Kröfuganga mánudaginn 1. maí
13:30 - Göngufólk safnast saman við Alþýðuhúsið
14:00 - Lagt af stað við undirleik Lúðrasveitar Akureyrar
Hátíðardagskrá í Hofi að lokinni kröfugöngu
Bryndís Ásmundsdóttir stýrir dagskránni og syngur vel valin lög.
Söngur og gleði með góðum gestum úr Leikfélagi Menntaskólans á Akureyri.