Kvennafrídagurinn

Kvennafrídagurinn er á morgun, þriðjudaginn 24. október, en 48 ár eru síðan konur lögðu niður störf í fyrsta sinn til þess að berjast fyrir jöfnum kjörum. Boðað er til samstöðufunda um allt land undir yfirskriftinni Kallar þú þetta jafnrétti? Í ár er gerð krafa um að störf kvenna verði metin að verðleikum og að kynbundnu ofbeldi verði útrýmt.

Samstöðufundur verður haldinn á Akureyri kl. 11:00 á Ráðhústorginu, sjá nánar hér. Konur og kvár eru hvött til þess að leggja niður störf, launuð og ólaunuð, allan daginn, sýna samstöðu með því að mæta á auglýsta viðburði og leggja þannig sitt af mörkum í baráttunni. 

Við hvetjum fyrirtæki til þess að stuðla að því að konur og kvár geti tekið þátt í deginum eins og til hans er boðað, án þess að til komi skerðing á launum.