Leikhúsboð

Leikhúsboð

Félagsmönnum Félags verslunar og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni sem náð hafa lífeyrisaldri er boðið á leiksýninguna Í fylgd með fullorðnum í uppsetningu Leikfélags Hörgdæla þann 19. mars.

Verkið er skrifað af Pétri Guðjónssyni, sem jafnframt leikstýrir sýningunni, en leikritið byggir á lögum og textum Bjartmars Guðlaugssonar. Leikritið fjallar um ævi Birnu sem er komin að ákveðnum kaflaskilum og rifjar upp líf sitt allt frá bernsku til fullorðinsára. 

Skráning

Um takmarkað sætaframboð er að ræða. Því þurfa félagsmenn að skrá sig fyrir 16. mars með því að hringja í síma 455-1050 eða senda póst á fvsa@fvsa.is.

Hámark tveir miðar á hvern félagsmann. Farið verður með rútu frá Alþýðuhúsinu kl. 14:30, mæting kl. 14:15.