LÍV undirritar kjarasamning við FA

Á myndinni eru frá vinstri: Guðrún Ragna Garðarsdóttir, formaður FA, Eiður Stefánsson, formaður FVSA…
Á myndinni eru frá vinstri: Guðrún Ragna Garðarsdóttir, formaður FA, Eiður Stefánsson, formaður FVSA og samninganefndar LÍV, Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA og Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR og LÍV.

Landssamband íslenzkra verzlunarmanna skrifaði undir kjarasamning við Félag atvinnurekenda fyrir hádegi, fimmtudaginn 14. mars 2024.

Samningurinn er sambærilegur og nýgerður kjarasamningur við Samtök atvinnulífsins. 

Kjarasamningur LÍV við FA

Rafræn atkvæðagreiðsla um samninginn hefst 18. mars og stendur til fimmtudagsins 21. mars.