Mikill verðmunur á umfelgun

Verðlagseftirlit ASÍ gerði verðkönnun á skiptingu, umfelgun og jafnvægisstillingu hjá 24 hjólbarðaverkstæðum víðsvegar um landið sl. mánudag. 
 
Mestur verðmunur í könnuninni var á þjónustu við dekkjaskipti á jeppa (t.d. Mitshubishi)  með 18´´ stálfelgum (265/60R18) sem var ódýrust á 7.000 kr. hjá Nýbarða en dýrust á 13.398 kr. hjá Sólningu, verðmunurinn var 6.398 kr. eða 91%. Fyrir álfelgu af sömu stærð er þjónustan ódýrust hjá Dekkverk og Nýbarða á 7.500 kr., en dýrust á 13.398 kr. hjá Sólningu verðmunurinn er 5.898 kr. eða 79%.