Minningarorð - Páll H. Jónsson

Páll H. Jónsson 1939-2026
Páll H. Jónsson 1939-2026

Páll H. Jónsson, fyrrum formaður FVSA

f. 28. maí 1939 - d. 23. mars 2026

Félag verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni kveður góðan félaga og fyrrum formann FVSA, Pál H. Jónsson.

Páll gerðist félagsmaður FVSA árið 1958 og kom fyrst að trúnaðarstörfum fyrir félagið árið 1979. Hann sat í stjórn sjúkrasjóðs í 18 ár (1980 – 1998). Hann sat í varastjórn félagsins og tók svo sæti í aðalstjórn sem varaformaður árið 1992. Páll var staðgengill formanns í forföllum Guðmundar Björnssonar árið 2001 og tók svo við formennsku við fráfall Guðmundar í febrúar 2002. Páll var kjörinn formaður FVSA til tveggja ára á aðalfundi félagsins í febrúar 2003 og var sá 21. til að gegna því hlutverki. Páll lét af formennsku árið 2005 og var í kjölfarið kjörinn í stjórn félagsins til ársins 2007. Á aðalfundi þann 20. febrúar árið 2007 var Páll gerður að heiðursfélaga FVSA.

Auk þess að sinna trúnaðarstörfum hjá félaginu af alúð í tæp þrjátíu ár var Páll iðinn við að sinna öðrum félagsstörfum. Nú síðast sat hann í ritnefnd í tengslum við útgáfu á sögu félagsins sem kom út árið 2021 og reyndist þekking hans ómetanleg við gerð bókarinnar.

Fyrir hönd félagsins þakka ég Páli fyrir góð kynni og fórnfýsi í starfi fyrir félagsfólk FVSA, aðstandendum votta ég samúð mína.

Eiður Stefánsson, formaður Félags verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni.