Niðurstöður atkvæðagreiðslu um kjarasamninga LÍV/FVSA verða birtar 24. apríl

Þótt atkvæðagreiðslu um nýgerða kjarasamninga LÍV/FVSA ljúki þann 15. apríl þá fara atkvæðagreiðslur um samningana fram á mismunandi tímum hjá félögum ASÍ.

Hafa félögin því sammælst um að bíða með að birta niðurstöður atkvæðagreiðslu um kjarasamninga til 24. apríl en þá lýkur síðustu kosningu meðal félaganna.

Niðurstöður kosninga hjá öllum félögum verða því birtar samtímis þann dag.