Opnað hefur verið fyrir umsóknir á sumarleigu 2018

Umsóknarfrestur um orlofshús, útilegukort og "viku að eigin vali" (orlofsstyrk) er til 25. mars 2018.

Sumarleiga orlofshúsa er frá 30. maí til 24. ágúst 2018. Umsækjendur fá skriflegt svar um úthlutunina um mánaðamót mars/apríl og þeir sem fá úthlutað þurfa að greiða í síðasta lagi 9. apríl.

Opnað verður fyrir lausar orlofsvikur sumar 2018 og vetrarleigu 2018 til maí loka 2019 á félagavef 11. apríl kl. 12:00.