Orlofsuppbót 2024

Við minnum á að orlofsuppbót félagsfólks er 58.000 kr. árið 2024, m.v. fullt starf, og á að greiða þann 1. júní. Fullt starf er 45 unnar vikur í 100% starfi fyrir utan orlof á orlofsárinu frá 1. maí 2023 til 30. apríl 2024.

Uppbótin greiðist, miðað við starfshlutfall og starfstíma, öllu starfsfólki sem hefur verið samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum m.v. 30. apríl, eða eru í starfi fyrstu vikuna í maí.

Orlofsuppbót er föst tala og tekur ekki launabreytingum skv. öðrum ákvæðum kjarasamnings. Skattur, félagsgjald og lífeyrissjóðsiðgjald greiðist af orlofsuppbót. Orlof greiðist ekki ofan á orlofsuppbótina.

Ávinnsla orlofsuppbótar í fæðingarorlofi
Eftir eins árs starf hjá sama vinnuveitanda teljast fjarvistir vegna lögbundins fæðingarorlofs til starfstíma við útreikning orlofsuppbótar. Sama gildir ef kona þarf af öryggis­ástæðum að leggja niður störf á meðgöngutíma, sbr. reglugerð um ráðstafanir til þess að auka öryggi og heilbrigði á vinnustöðum fyrir konur sem eru þungaðar, hafa nýlega alið barn eða hafa barn á brjósti.