Orlofsuppbót 2021

Við minnum á rétt félagsmanna á orlofsuppbót, sem vinnuveitandi skal greiða eigi síðar en 1. júní 2021. Orlofsuppbót fyrir hvert orlofsár (1. maí til 30. apríl) miðað við fullt starf er:  

kr. 52.000 til greiðslu 1. júní 2021

Orlofsuppbót er föst tala og tekur ekki launabreytingum skv. öðrum ákvæðum kjarasamnings. Skattar og skyldur, félagsgjöld og lífeyrissjóður greiðast af orlofsuppbót. Orlof greiðist ekki ofan á orlofsuppbótina. 

Inn á vef VR má finna reiknivél fyrir orlofsuppbót miðað við starfshlutfall: REIKNIVÉL