Starfslokanámskeið vel sótt

Á dögunum bauð FVSA félagsmönnum að sækja svokallað starfslokanámskeið. Farið var yfir gagnlegar upplýsingar varðandi starfslok með tilliti til lífeyrisréttinda, réttinda hjá félaginu, almannatryggingsjóð ofl. Þá var einnig kynning á vegum Félags eldri borgara, SÍMEY auk fræðslu um heilsueflingu og afþreyingu á vegum sveitarfélagsins.

Mikil ánægja var meðal félagsmanna með námskeiðið, en alls mættu 34 manns í húsakynni SÍMEY, eða 21 kona og 13 karlmenn. Við þökkum fyrirlesurum fyrir þeirra famlag og félagsmönnum fyrir þáttökuna. 

Við minnum félagsmenn á að þeim er alltaf velkomið að hafa samband við skrifstofu félagsins með fyrirspurnir, síminn er 455-1050 og netfangið fvsa@fvsa.is