Stjórnarkjör - auglýst eftir listum

Stjórnarkjör - auglýst eftir listum

Félag verslunar og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni auglýsir eftir listum varðandi kjör í trúnaðarstöður félagsins fyrir starfsárið 2024-2025 að viðhafðri allsherjaratkvæðagreiðslu.

Ber samkvæmt því að skila listum skipuðum:

  • Tveimur í aðalstjórn til tveggja ára
  • Þremur í varastjórn til eins árs
  • Fimm aðalmönnum í trúnaðarráð til eins árs
  • Fimm til vara í trúnaðarráð
  • Fjórum í stjórn sjúkrasjóðs til eins árs og þremur til vara

Hverjum framboðslista skulu fylgja meðmæli minnst 60 fullgildra félagsmanna. Listum ber að skila á skrifstofu FVSA, Skipagötu 14, 3. hæð, eigi síðar en kl. 12.00 á hádegi mánudaginn 22. janúar 2024.