Til hamingju með daginn!

Eiður Stefánsson, formaður LÍV og FVSA
Eiður Stefánsson, formaður LÍV og FVSA

Til hamingju með daginn!

Verkalýðsdeginum er fagnað um allt land undir kjörorðunum Styrkur okkar er velferð allra. Í þeim felst áminning um mikilvægi launafólks í uppbyggingu velferðasamfélagsins sem við búum í og að með samheldni höfum við náð árangri sem tekið er eftir á heimsvísu.

Mig langar að nýta tækifærið og beina orðum mínum til unga fólksins.

Þau réttindi sem þið njótið í dag eru afrakstur baráttu fyrri kynslóða og þau haldast aðeins ef við stöndum vaktina saman.

Þekkið réttindi ykkar og standið vörð um þau.  

Verið virk í samtalinu um eigin hag og takið þátt í baráttunni.

Árangur næst ekki án samstöðu og á komandi haustmánuðum mun mögulega reyna á að við stöndum saman sem eitt. Í september n.k. verður tekin afstaða til ákvæða í kjarasamningi um að 12 mánaða verðbólga í ágúst mælist ekki yfir 4,7%, forsendan telst hafa staðist ef sex mánaða verðbólguhraði er innan marka. Samkvæmt verðbólguspám stendur á mjóu og nú þegar líður að kosningum horfum við til þess að sveitafélögin axli ábyrgð og standi við gefin loforð um hófsama gjaldtöku á opinberum gjöldum. Þá er mikilvægt að fyrirtæki dragi úr arðsemiskröfum og lækki vöruverð, það sama á við um bankana.

Velferðarsamfélag sem er byggt á vinnuframlagi alls launafólks í landinu má ekki bara vera paradís fyrir fáa útvalda og ef til þess kemur að kjarasamningar halda ekki í haust er mikilvægt að við séum tilbúin til þess að koma fram sem ein heild og verja okkar hagsmuni. 

Framundan er einnig kosning um framhald aðildarviðræðna Íslands að Evrópusambandinu og þjóðin skiptist í tvær jafnar fylkingar. Sem baráttumaður fyrir betri hag félagsfólks vil ég fá tækifæri til að kynna mér hvort slíkur samningur myndi skila okkur bættum kjörum eða ekki og ég treysti íslensku þjóðinni til að taka upplýsta afstöðu. Norðmenn hafa tvívegis klárað samning við Evrópusambandið en hafnað aðild í þjóðarkosningu. Fyrst árið 1972, þegar 53% norsku þjóðarinnar hafnaði samning, og aftur árið 1994 þegar 52% norsku þjóðarinnar hafnaði samning. Það er ekkert að því að klára umsóknarferlið, sjá hvað aðild Íslands að ESB myndi þýða fyrir efnahag landsins og taka upplýsta ákvörðun í framhaldinu.

Það er von mín að um allt land komi fólk saman og nýti daginn til þess að fagna áfangasigrum verkalýðshreyfingarinnar, þetta er okkar dagur!

Eiður Stefánsson, formaður Landssambands íslenzkra verzlunarmanna og Félags verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni