Umsóknarfrestur vegna sumarúthlutunar.

Minnum á að síðasti dagur til að sækja um orlofshús, viku að eigin vali og útilegukort er 25. mars 2019.

Síðasti dagur til að greiða orlofshúsabókun fyrir sumarið er 8. apríl 2019.

Ef greiðsla hefur ekki borist fyrir tilsettan tíma fellur bókunin niður.

10. apríl 2019 kl. 12 verður opnað fyrir bókun á félagavef á lausum orlofshúsavikum fyrir sumarið 2019 og vetrarleigu 2019-2020. 

Þar geta félagsmenn bókað og greitt laus orlofshús og þá gildir reglan – fyrstur kemur fyrstur fær-.

Fréttablaði FVSA hefur verið dreift í öll hús. Þeir sem ekki hafa fengið blaðið geta nálgast það á skrifstofu félagsins eða kíkt í það hér